Unglingadómaranámskeið hjá Aftureldingu á mánudag
Unglingadómaranámskeið verður haldið í vallarhúsinu að Varmá, sem staðsett er við aðalvöllinn, mánudaginn 17. maí og hefst það kl. 20:00. Námskeiðið er öllum opið þeim sem náð hafa 15 ára aldri og hafa brennandi áhuga á knattspyrnu.
Hægt er að skrá sig á magnus@ksi.is.