Mikill áhugi á Hvammstanga
Í gær var Luka Kostic, landsliðsþjálfari U17 og U21 karla, staddur á Hvammstanga þar sem hann stjórnaði nokkrum knattspyrnuæfingum fyrir áhugasama krakka. Mætingin á Hvammstanga var frábær og áhuginn sem krakkarnir sýndur var til fyrirmyndar. Luka stjórnaði nokkrum æfingum í íþróttahúsinu en áhuginn er mikill á staðnum og er sparkvöllurinn ákaflega mikið notaður þar eins og annars staðar.
Luka verður á Dalvík á miðvikudaginn og heldur svo áfram að heimsækja félög á næstunni en þessar heimsóknir Luka eru liður í útbreiðslustarfi KSÍ.