Byrjunarlið U19 kvenna gegn Belgíu
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt er mætir Belgum í dag. Leikurinn er fyrsti leikur liðsins í milliriðli fyrir EM 2008 og er leikið í Belgíu. Önnur lið í riðlinum eru England og Pólland.
Byrjunarlið (4-5-1):
Markvörður: Íris Dögg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Lovísa Erlingsdóttir
Vinstri bakvörður: Andrea Ýr Gústavsdóttir
Miðverðir: Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrirliði og Anna Björk Kristjánsdóttir
Tengiliðir: Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir og Laufey Björnsdóttir
Hægri kantur: Karen Sturludóttir
Vinstri kantur: Jóna Kristín Hauksdóttir
Framherji: Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir er í leikbanni í þessum leik.
Viðtal við Ólaf Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfara U19 kvenna, má sjá hér.