Útbreiðslustarf KSÍ í fullum gangi
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U17 og U21 karla, sinnir útbreiðslustarfi KSÍ og hefur gert það víðreist upp á síðkastið. Luka heimsótti Egilsstaði og Reyðarfjörð í síðustu viku og heldur áfram að heimsækja félög í þessari viku sem og þeirri næstu.
Luka heldur ýmist fyrirlestra fyrir þjálfara og/eða iðkendur í ferðum sínum og stjórnar jafnvel æfingum líka. Viðtökurnar sem Luka fær eru mjög góðar og yfirleitt er mætingin virkilega góð. Þannig voru um 50 manns á Egilsstöðum og kom í ljós að sparkvellir KSÍ á Austurlandi eru gríðarlega mikið notaðir af yngri iðkendum. Luka var einnig hjá HK og FH í síðustu viku.
Í gær heimsótti Luka svo Fylkismenn í Árbæinn og sóttu um 80 manns fyrirlesturinn. Í næstu viku heldur Luka á Norðurland. Á mánudaginn verður hann á Hvammstanga og Dalvík á þriðjudaginn.