Úrskurður í máli Hattar gegn mótanefnd KSÍ
Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir mál Hattar gegn mótanefnd KSÍ en Höttur kærði þá ákvörðun mótanefndar um að Afturelding tæki laust sæti í B deild Íslandsmóts 2. flokks karla. Úrskurðurinn er á þann veg að ákvörðun mótanefndar stendur óhögguð.