Héraðsdómaranámskeið á Akureyri
Héraðsdómaranámskeið verður haldið á Akureyri fimmtudaginn 10. apríl kl. 17:00 í Hamri.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara á Norðurlandi og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.
Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Kennari á námskeiðinu er Gylfi Orrason.
Farið verður í mjög gott námsefni frá FIFA þar sem farið er í praktísku hlið dómgæslunnar.
Þarna er gott tækifæri fyrir félögin á Norðurlandi að finna líkleg dómaraefni og senda þau á námskeiðið.
Einnig eru allir starfandi dómarar á Norðurlandi hvattir til þess að mæta.