Ísland upp um þrjú sæti
Íslenska karlalandsliðið færist upp um þrjú sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Íslenska karlalandsliðið er nú í 86. sæti listans. Argentínumenn er sem fyrr í efsta sæti FIFA styrkleikalistans.
Makedónía, sem leikur með Íslandi í riðli í undankeppni fyrir HM 2010 færist einnig upp um þrjú sæti og er í 56. sæti. Aðrir mótherjar Íslendinga í riðlinum færast niður um eitt sæti. Holland er í 10. sæti, Skotar í 15. sæti og Norðmenn í 28. sæti.
Næstu mótherjar Íslendinga eru Walesverjar en þeir leika vináttulandsleik á Laugardalsvelli 28. maí næstkomandi. Wales hefur hækkað um eitt sæti á listanum og er í 52. sæti.