Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna um næstu helgi
Landsliðsþjálfararnir, Kristrún Lilja Daðadóttir og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa sína sem mæta á úrtaksæfingar um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum. Breytingar hafa orðið á áður tilkynntum æfingatímum.
Næsta verkefni U17 er Opna Norðurlandamótið sem hefst í lok júní. Fyrir mótið mun liðið væntanlega koma saman eina æfingahelgi í Reykjavík í júní og síðan æfa síðustu 3 dagana fyrir mótið.
Næsta verkefni U19 eru milliriðlar EM sem fram fara í Belgíu 23.-30. apríl. Stefnt er að því að liðið æfi eins og kostur er síðustu dagana fyrir þá ferð.