Dregið í riðla á Norðurlandamóti U16 kvenna
Dregið hefur verið í riðla í Norðurlandamóti NMU16 kvenna sem fram fer hér á landi næsta sumar og ennfremur hafa leikvellir verið ákveðnir. Íslenska liðið leikur í A-riðli með Þýsklandi, Danmörku og Noregi og fer sá riðill fram á Suðurlandi. Leikið verður á Selfossi, Hvolsvelli og í Þorlákshöfn.
Í B-riðli eru Svíþjóð, Finnland, Frakkland og Holland og fer sá riðill fram á Reykjanesi. Leikið verður í Sandgerði, Njarðvík, í Garðinum og Keflavík.
Leikir um sæti fara fram í Reykjavík og nágrenni.