Ólöglegur leikmaður hjá Haukum í Lengjubikar karla
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Philip Frikschmann lék ólöglegur með Haukum í leik gegn Þrótti R sem fram fór í Lengjubikar karla, 30. mars síðastliðinn. Philip er ekki skráður leikmaður hér á landi.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð standa úrslit leiksins óbreytt.