Stórtap hjá U19 kvenna gegn Írum
Stelpurnar í U19 kvenna töpuðu stórt gegn stöllum sínum frá Írlandi í dag. Írska liðið var mun sterkara í þessum leik og sigruðu með átta mörkum gegn engu. Grunnurinn að sigri heimastúlkna var lagður í fyrri hálfleik en þá skoruðu írsku stelpurnar fimm mörk gegn engu.
Þetta eru í raun ótrúlegar tölur ekki síst í ljósi þess að íslensku stelpurnar unnu fyrri leik liðanna í föstudag með einu marki gegn engu.
Írska liðið var mun sterkara í þessum leik og eftir að fyrsta markið kom strax á 5. mínútu var aldrei spurning um hvar sigurinn mundi lenda.
Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil EM sem fram fer í Belgíu seinni hluta apríl mánaðar. Þar verða mótherjar Íslands, auk heimastúlkna, England og Pólland.