Seinni leikur U19 kvenna við Íra í dag
Íslenska U19 kvennalandsliðið leikur í dag seinni vináttulandsleik sinn við Íra og fer leikurinn fram í Dublin. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn er hefst kl. 11:00.
Byrjunarliðið (5-3-2):
Markvörður: Björk Björnsdóttir
Hægri bakvörður: María Rós Arngrímsdóttir
Vinstri bakvörður: Lovísa Erlingsdóttir
Miðverðir: Hlín Gunnlaugsdóttir, fyrirliði, Anna Björk Kristjánsdóttir og Alma Rut Garðarsdóttir
Tengiliðir: Elínborg Ingvarsdóttir, Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Anna Birna Þorvarðardóttir
Framherjar: Fanndís Friðriksdóttir og Berglind Ósk Kristjánsdóttir