Þjálfarastyrkur ÍSÍ
Stjórn verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið janúar til júní 2008. Styrkirnir verða veittir einstaklingum sem sækja eða hafa sótt námskeið eða fræðslu í þjálfun erlendis á fyrrgeindu tímabili.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu ÍSÍ (http://www.olympic.is/) undir „Um ÍSÍ - styrkir“ og skal umsóknin berast skrifstofu ÍSÍ merkt „Þjálfarastyrkir vor 2008“. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl næstkomandi.
Allar frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is.