KSÍ með dómaranámskeið hjá Víkingi og ÍR
Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.
Námskeiðið er öllum opið sem, náð hafa 15 ára aldri.
Námskeiðið er ókeypis.
Skráning er hjá magnus@ksi.is.