• fös. 28. mar. 2008
  • Landslið

Írar lagðir í Dublin

Íslenski U19 hópurinn er tekur þátt í úrslitakeppni EM U19 kvenna á Íslandi.
Islensku_U19_hopurinn

Íslenska U19 kvennalandsliðið lagði Íra í dag með einu marki gegn engu.  Leikurinn, sem fór fram í Dublin, er fyrri vináttulandsleikur liðanna en síðari leikurinn fer fram á sunnudaginn.  Hlín Gunnlaugsdóttir skoraði mark Íslands úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

Leikurinn var frekar jafn og lítið um opin marktækifæri hjá liðunum.  Munurinn lá í því að Ísland fékk vítaspyrnu einni mínútu fyrir lok fyrri hálfleiks.  Fyrirliðinn, Hlín Gunnlaugsdóttir, fór á punktinn og skoraði sigurmark leiksins.

Leikskýrsla