U17 kvenna leikur við Dani í dag
Stelpurnar í U17 kvennalandsliðinu leika sinn annan leik í milliriðli fyrir EM 2008 þegar þær mæta Dönum í dag. Leikurinn hefst kl. 14:30 og fer fram á Spjald Stadion í Danmörku. Þetta er annar leikur liðsins í riðlinum en stelpurnar töpuðu naumlega fyrir Rússum í fyrsta leiknum, 3-4.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en fresta þurfti leiknum vegna þess að mikill snjór var á vellinum og tókst ekki að ryðja hann líkt og gert var fyrir leikinn gegn Rússum.
Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
Byrjunarliðið (4-5-1):
Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir
Vinstri bakvörður: María Rannveig Guðmundsdóttir
Hægri bakvörður: Andrea Ýr Gústavsdóttir
Miðverðir: Arna Ómarsdóttir og Silvía Sigurðardóttir
Vinstri kantur: Stefanía Valdimarsdóttir
Hægri kantur: Katrín Ásbjörnsdóttir
Tengiliðir: Arna Sif Ásgrímsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir og Heiða Dröfn Antonsdóttir
Sóknarmaður: Berglind Björk Þorvaldsdóttir
Danir og Finnar gerðu markalaust jafntefli í fyrstu umferðinni en Finnar og Rússar eigast við í dag kl. 12:00