Leik U17 kvenna frestað í dag
Leik Danmerkur og Íslands í milliriðli EM 2008 hjá U17 kvenna hefur verið frestað en leikurinn átti að fara fram í dag. Mikill kuldi hefur verið í Danmörku og mikill snjór á vellinum. Leikurinn mun fara fram á morgun, fimmtudag, kl. 14:30.
Íslenska liðið tapaði naumlega fyrsta leik sínum í riðlinum, 3-4 gegn Rússum. Ekki kom í ljós fyrr en skömmu fyrir þann leik hvort hann gæti farið fram en þá tókst að ryðja völlinn stuttu fyrir leik.
Síðasti leikur Íslands í riðlinum er svo á laugardag og verða Finnar þá mótherjarnir.