Kristján Örn fyrirliði á morgun
Íslenska landsliðið æfði í morgun og í gærkvöldi á grasi en fyrsta æfing liðsins varð að fara fram á gervigrasi sökum vætutíðar. Liðið æfir aftur seinni partinn í dag en leikurinn við Slóvaka hefst kl. 19:15 á morgun, miðvikudag.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag að Kristján Örn Sigurðsson verði fyrirliði liðsins á morgun. Kristján Örn hefur leikið 28 landsleiki og skorað í þeim 2 mörk. Hann hefur ekki áður gegnt fyrirliðastöðunni hjá A landsliði karla.
Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport og hefst útsending kl. 18:50.