Karlalandsliðið æfir í Slóvakíu
Íslenska landsliðið hélt til Bratislava í Slóvakíu á páskadag en leikinn verður vináttulandsleikur við heimamenn á miðvikudaginn. Heldur er hráslagalegt í Bratislava og bæði kalt og blautt. Fyrsta æfing dagsins þurfti því að fara fram á gervigrasi og voru leikmenn, þjálfarar og aðstoðarmenn, vel dúðaðir á æfingunni.
Allir leikmenn hópsins eru komnir til Bratislava og á myndinni sem hér fylgir, má sjá leikmenn taka við fyrirmælum frá Ólafi Jóhannessyni landsliðsþjálfara. Eins og endranær var það búningastjórinn veituli, Björn Ragnar Gunnarsson, sem mundaði símtækið.