Hermann ekki með gegn Slóvökum
Hermann Hreiðarsson hefur dregið sig út úr landsliðshópnum sem mætir Slóvökum í vináttulandsleik á miðvikudaginn. Hermann er meiddur og var þessi ákvörðun tekin eftir samráð við lækni íslenska landsliðsins. Hermann hélt því af stað til Englands í dag.
Leikurinn við Slóvaka hefst kl. 19:15, miðvikudaginn 26. mars og verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport.