Breyting á hópnum fyrir Slóvakaleikinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshópnum sem fer til Slóvakíu til að leika vináttulandsleik 26. mars næstkomandi. Tryggvi Guðmundsson úr FH kemur inn í hópinn í stað Helga Sigurðssonar úr Val sem er meiddur.