U19 kvenna leikur gegn Írum
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp til þess að leika tvo vináttulandsleiki gegn Írum nú í lok mars. Leikirnir fara fram 28. og 30. mars og verða leiknir í Dublin.
Leikir þessir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil EM sem leikinn verður í Belgíu í apríl. Ísland er þar í riðli með heimastúlkum, Póllandi og Englandi.
Írska liðið undirbýr sig fyrir milliriðlana líkt og íslenska liðið og báðar þessar þjóðir sigruðu í öllum sínum leikjum í undariðlunum. Ísland lagði Grikkland, Portúgal og Rúmeníu í undakeppninni en Írar báru sigurorð af Króatíu, Slóvakíu og Sviss.