Sérstakar undirbúningsæfingar U19 karla
Sérstakar undirbúningsæfingar verða hjá U19 karla dagana 20. - 22. mars næstkomandi. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hóp fyrir þessar æfingar en þetta er liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil EM 2008 sem leikinn verður í Noregi í lok apríl.