Fjárhagsgögn Fjarðabyggðar í póst í dag
Enn eiga tvö félög eftir að skila fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsóknum sínum, en það eru 1. deildarliðin Fjarðabyggð og Haukar.
Samkvæmt upplýsingum leyfisstjórnar fóru gögn Fjarðabyggðar í póst í dag, föstudag, og ættu því að berast fyrir fund leyfisráðs á mánudag. Haukar munu vinna í sínum gögnum á næstu dögum og skila á mánudag.