Aðgöngumiðar á Ísland-Færeyjar fyrir handhafa A-passa
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyja afhenta föstudaginn 14. mars frá kl. 10:00 - 15:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis. Mjög takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.
Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Leikurinn fer fram í Kórnum Kópavogi og hefst kl. 16:00, sunnudaginn 16. mars.