Fyrsta fundi leyfisráðs lokið
Leyfisráð KSÍ kom saman í dag og hlýddi á skýrslu leyfisstjóra um stöðu þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ. Gefin var ítarleg skýrsla um hvert og eitt af félögunum 24 og í framhaldinu ákvað leyfisráð að gefa þeim félögum sem eru með ókláruð atriði viku frest til að ganga frá þeim málum. Ráðið kemur aftur saman mánudaginn 17. mars.