Leyfisráð fundar á mánudag
Leyfisráð KSÍ fundar á mánudag og tekur þá fyrir umsóknir félaga um þátttökuleyfi í Landsbankadeild karla og 1. deild karla. Aldrei áður hafa jafn mörg félög undirgengist leyfiskerfið, sem nær nú til 24 félaga.
Leyfisstjóri mun gefa skýrslu kynna gögn félaganna fyrir meðlimum leyfisráðs. Í framhaldinu mun ráðið annað hvort taka ákvarðanir um veitingu þátttökuleyfa 2008, eða óska eftir frekari gögnum frá félögunum þar sem við á.