FIFA fjölgar dómurum á nokkrum leikjum á Algarve
FIFA mun vera nota Algarve Cup sem tilraunamót fyrir nýjung í dómaramálum. Á nokkrum leikjum á Algarve Cup verða dómararnir sex talsins í stað fjögurra. Ekki verður gefið upp fyrirfram á hvaða leikjum þetta kerfi verður notað.
Þessir tveir aukaaðstoðardómarar verða fyrir aftan sitt hvort markið og munu einbeita sér að brotum innan vítateigs. Ekki verða þeir með flautu heldur verða í sambandi við hina dómara leiksins í gegnum samskiptabúnað. Þetta kerfi verður svo notað á öllum leikjum á HM U20 kvenna sem fram fer í Chile síðar á árinu.
44 dómarar munu starfa á Algarve Cup og koma dómararnir frá öllum heimshornum.