• þri. 04. mar. 2008
  • Landslið

Góðar aðstæður hjá kvennalandsliðinu

Landsliðið eftir sigur á Kína á Algarve Cup árið 2007
Algarve_2007_Kina

Íslenska kvennalandsliðið er komið til Algarve þar sem liðið tekur þátt á Algarve Cup.  Fyrsti leikur liðsins er á morgun, miðvikudag og verða Pólverjar andstæðingarnir.  Leikurinn hefst kl. 13:15 og verður fylgst með framvindu leiksins hér á síðunni.

Stelpurnar æfa tvisvar sinnum í dag og eru æfingavöllurinn í góðu ásigkomulagi og allar aðstæður hinar bestu. 

Leikið verður við Pólland á morgun, Írland á föstudaginn og Portúgal á mánudaginn.  Á miðvikudag verður svo leikið um sæti.