KS/Leiftur hefur skilað
Fjárhagsleg fylgigögn með leyfisumsókn KS/Leiftur hefur nú borist og þar með hafa átta af tólf félögum í 1. deild skilað fjárhagslegum gögnum sínum. KS/Leiftur hefur aldrei áður undirgengist leyfiskerfi KSÍ.
Gögn frá fjórum 1. deildarfélögum hafa ekki borist - Fjarðabyggð, Haukum, ÍBV og KA - en ÍBV og KA hafa þegar póstað sín gögn þannig að þau ættu að berast í dag (þriðjudag) eða á miðvikudag.