KR-ingar hafa skilað sínu
KR-ingar hafa nú skilað fjárhagslegum fylgigögnum sínum með umsókn um þátttökuleyfi í Landsbankadeildinni 2008. Þar með hafa 10 af 12 félögum í deildinni skilað og aðeins Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík eru eftir. Von er á gögnum frá Grindvíkingum og Keflvíkingum á næstu dögum.
Á meðal fjárhagslegra gagna eru ársreikningur með fullri áritun endurskoðanda og ýmsar staðfestingar, þ.á.m. stafestingar á því að engin vanskil séu vegna félagaskipta leikmanna og til starfsmanna (leikmanna, þjálfara og annarra).