Hópurinn tilkynntur fyrir Algarve Cup
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshópinn er tekur þátt á Algarve Cup dagana 5. - 12. mars. Mótherjar Íslands á mótinu verða Pólland, Írland og Portúgal. Einnig verður leikið um sæti á mótinu.
Sigurður Ragnar hefur valið 20 leikmenn til þess að leika á mótinu og eru í hópnum tveir nýliðar.