Íslandsmeistararnir búnir að skila
Íslandsmeistarar Vals, sem unnu glæstan sigur í Landsbankadeild karla í fyrra, hafa nú skilað fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsókn sinni og eru þeir sjöunda félagið til að gera svo.
Fimm félög í Landsbankadeild eiga þá eftir að skila - Fram, Grindavík, HK, Keflavík og KR. Fjögur félög í 1. deild hafa skilað.