HK hefur skilað gögnum
HK hefur nú skilað fjárhagslegum fylgigögnum með leyfisumsókn og hafa þá átta af tólf félögum í Landsbankadeild skilað gögnum. Aðeins fjögur félög eru eftir í Landsbankadeild, en átta eru eftir í 1. deild, þó nokkur þeirra hafi reyndar sett gögn sín í póst í dag.