Blikar skila fjárhagsgögnum
Breiðablik hefur nú skilað fjárhagslegum leyfisgögnum sínum og eru Blikar fyrsta Landsbankadeildarliðið til að skila fjárhagsgögnum í ár. Áður höfðu tvö félög í 1. deild skilað sínum gögnum - Njarðvík og Stjarnan.
Von er á gögnum frá fleiri félögum í dag og næstu daga, enda undirgangast alls 24 félög leyfiskerfið, þ.e. öll félög í Landsbankadeild karla og 1. deild karla.
Fylgst verður með gangi mála hér á ksi.is.