Njarðvíkingar fyrstir að skila fjárhagsgögnum
Njarðvíkingar, sem leika í 1. deild karla, urðu á miðvikudag fyrsta félagið til að skila fjárhagslegum leyfisgögnum til leyfisstjórnar. Skilafrestur fjárhagslegra gagna er til 20. febrúar, þannig að Njarðvíkingar eru ansi tímanlega.
Fjárhagsleg gögn sem félög í 1. deild þurfa að skila eru ársreikningur með fullri áritun endurskoðanda (rekstrarreikningur, efnahagsreikningur, sjóðstreymi og skýringar), auk fylgigagna og staðfestinga á því að engin vanskil séu við önnur knattspyrnufélög vegna félagaskipta eða við starfsmenn (leikmenn, þjálfara, og fleiri). Félög í Landsbankadeild þurfa að auki að leggja fram rekstrar- og greiðsluáætlanir, en félög í 1. deild eru undanskilin því.