Skilið á milli A og B liða í 5. flokki
Sú breyting hefur verið gerð á keppnisfyrirkomulagi í 5. flokki karla og kvenna að sameiginlegur árangur A og B liða telur ekki lengur til Íslandsmeistaratitils.
Þannig hefur verið skilið á milli liðanna og úrslit A og B liða teljast ekki lengur saman eins og verið hefur.
Til samræmis var sett inn í reglugerð um knattspyrnumót ákvæði um hlutgengi leikmanna í úrslitakeppni.