Markamismunur ræður ekki lengur röð liða
Reglugerð KSÍ um knattspyrnumót 7 manna liða í 5. flokki og yngri hefur verið breytt þannig að markamismunur ákvarðar ekki lengur röð liða, heldur einungis fjöldi stiga. Í þessum flokkum ákvarðast nú röð liða í stöðutöflu samkvæmt neðangreindu:
- a. Fjöldi stiga.
- b. Fjöldi stiga í innbyrðis leikjum liða með sömu stigatölu.
- c. Hlutkesti.
Breytingin tók gildi frá og með ársþingi KSÍ 8. febrúar síðastliðinn.