Leikdagar ákveðnir í undankeppni U17 kvenna
Gefnir hafa verið út leikdagar í riðli Íslendinga í undankeppni EM 2009 hjá U17 kvenna. Riðill Íslendinga verður leikinn á Ítalíu og verður verkefni íslensku stelpnanna verðugt.
Ásamt gestgjöfum Ítala eru Frakkar og Azerbaijan með Íslendingum í riðli. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður við Frakka 7. október. Þann 9. október verða heimamenn mótherjarnir og lokaleikur Íslands verður gegn Azerbaijan, 12. október.