Úrtaksleikir við Möre og Romsdal
Úrtakshópar KSÍ karla og kvenna munu leika fjóra vináttuleiki gegn úrvalsliðum Møre og Romsdal fylkis í Noregi á næstu dögum (tveir karlaleikir og tveir kvennaleikir).
Freyr Sverrisson þjálfari U16 karla og Kristrún Lilja Daðadóttir þjálfari U17 kvenna hafa hvort um sig valið tvo úrtakshópa til að leika sinn hvorn leikinn.