Valur og Fjarðabyggð fengu Drago stytturnar
Valur fékk afhenta Drago-styttuna svokölluðu í Landsbankadeild karla 2007 og Fjarðabyggð fékk styttuna afhenta í 1. deild karla. Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna.
Það var formaður KSÍ sem afhenti fulltrúum félaganna stytturnar.