Geir Magnússon fékk viðurkenningu
Geir Magnússon, íþróttafréttamaður, fékk í dag knattspyrnupennann á ársþingi KSÍ. Það var Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sem afhenti Geir Magnússyni pennann en hann hefur verið öflugur málsvari íslenskrar knattspyrnu í sínu starfi.
Geir hefur ákveðið að skipta um starfsvettvang og þakkar KSÍ honum kærlega fyrir hans störf í þágu íslenskrar knattspyrnu í gegnum árin.