Ólöglegur leikmaður með KR gegn ÍR
Skrifstofa KSÍ hefur staðfest að Guðmundur Pétursson lék ólöglegur með liði KR í leik gegn ÍR í Reykjavíkurmóti karla föstudaginn 25. janúar síðastliðinn, en hann er skráður í norskt félag.
Úrslitum leiksins hefur því verið breytt í 3-0, ÍR í vil.