Ólöglegur leikmaður með KR gegn Leikni R
Skrifstofa KSÍ hefur staðfest að Guðmundur Pétursson lék ólöglegur með liði KR í leik gegn Leikni R í Reykjavíkurmóti karla föstudaginn 18. janúar síðastliðinn, en hann er skráður í norskt félag.
Úrslitum leiksins hefur því verið breytt í 3-0, Leikni R í vil.