Dómaranámskeið eingöngu fyrir konur
Mikill áhugi er innan vébanda KSÍ að fá fleiri konur í dómgæslu. Hugmyndin er að halda dómaranámskeið eingöngu fyrir konur. Farið verður yfir knattspyrnulögin og síðan mun Gylfi Orrason fara í praktísku hliðina á dómgæslunni. Í framhaldi verða síðan fundin verkefni við hæfi þar sem dómaratríóið yrði eingöngu skipað konum.
Í fyrrasumar var haldin úrslitakeppni EM U-19 kvenna hér á Íslandi. Dómararnir voru eingöngu konur enda er það stefna hjá FIFA að konur dæmi alla kvennaleiki á vegum þess.
Ef vel tækist til í þessu átaki er ekkert því til fyrirstöðu að tilnefna konur á FIFA listann í framtíðinni.
Námskeiðið verður sunnudaginn 24. febrúar.
Allar konur sem hafa áhuga á þessum málaflokki eru hvattar til að mæta og gildir þá einu hvort einhver dómarareynsla er til staðar eða ekki.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í námskeiðinu sendu þá póst á magnus@ksi.is