Kosningar í stjórn á 62. ársþingi KSÍ
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 12. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
a. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
b. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
c. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
d. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
e. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir þeim framboðum sem tilkynnt voru til skrifstofu KSÍ hálfum mánuði fyrir þing og eru þau birt í stafrófsröð.
Kosning formanns
· Formannskjör fer ekki fram – Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður til tveggja ára á 61. ársþingi KSÍ í febrúar 2007.
Kosning í aðalstjórn
· Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:
Í aðalstjórn
Lúðvík S. Georgsson, varaformaður Reykjavík
Jón Gunnlaugsson, ritari Akranesi
Ástráður Gunnarsson Reykjanesbæ
Ingibjörg Hinriksdóttir Kópavogi
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalstjórnar :
Björn Guðbjörnsson Reykjavík
Ingibjörg Hinriksdóttir Kópavogi
Jón Gunnlaugsson Akranesi
Lúðvík S. Georgsson Reykjavík
Rúnar V. Arnarson Keflavík
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn: (Tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2009)
Halldór B. Jónsson, varaformaður Reykjavík *
Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri Reykjavík
Stefán Geir Þórisson Reykjavík
Vignir Már Þormóðsson Akureyri
* Halldór B Jónsson hefur ákveðið sökum veikinda að draga sig úr stjórn KSÍ. Af þeim sökum samþykkti stjórn KSÍ að fram skuli fara kosning um sæti hans og að kosið verði um það sérstaklega á komandi ársþingi KSÍ til eins árs. Jafnframt samþykkti stjórn KSÍ að opið verði fyrir framboð í það sæti fram að kjöri. Kosning fer fram að lokinni kosningu 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára.”
Neðangreindur hefur þegar boðið sig fram í sæti Halldórs B. Jónssonar:
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
· Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:
Aðalfulltrúar landsfjórðunga
Björn Friðþjófsson Norðurland
Einar Friðþjófsson Suðurland
Guðmundur Ingvason Austurland
Jakob Skúlason Vesturland
Allir ofangreindir aðalfulltrúar landsfjórðunganna gefa kost á sér til endurkjörs.
Kosning varamanna í aðalstjórn
· Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 62. ársþingi KSÍ 9. febrúar nk.:
Varamenn í aðalstjórn
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Kjartan Daníelsson Reykjavík
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til varastjórnar:
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Kjartan Daníelsson Reykjavík
Sigvaldi Einarsson Kópavogi
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík