Hópurinn valinn hjá U21 karla fyrir Kýpurferð
Lúka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn er mætir Kýpur ytra þann 6. febrúar næstkomandi. Leikurinn er liður í undankeppni EM 2009 og er Ísland með 6 stig eftir 5 leiki í riðlinum.
Þjóðirnar mættust á síðasta ári í fyrsta leiknum í riðlinum í Grindavík en þá fóru gestirnir með sigur af hólmi, 0-1. Íslenska liðið hefur ekki tapað leik í riðlinum síðan þá, gert þrjú jafntefli og unnið Belga á útivelli.