Unglingadómaranámskeið á Húsavík í dag
Síðustu daga hafa verið haldin dómaranámskeið á Norðurlandi og hefur Magnús Jónsson, dómarastjóri KSÍ, verið með umsjón með þessum námskeiðum. Námskeiðin hingað til hafa gengið vel og verið ágætlega sótt. Síðasta námskeiðið í þessari hrinu verður haldið í dag, fimmtudag og fer fram í Íþróttahöllinni á Húsavík.
Unglingadómaranámskeið eru opin öllum sem hafa náð 15 ára aldri og hafa brennandi áhuga á knattspyrnu. Ekkert þátttökugjald er á þessum námskeiðum. Fleiri unglingadómaranámskeið eru fyrirhuguð og verða þau nánar auglýst síðar hér á síðunni.