Umfjöllun um Akranes á vefsíðu UEFA
Á morgun mun birtast á heimasíðu UEFA umfjöllun um knattspyrnubæinn Akranes og þann fjölda atvinnumanna er koma þaðan. Aðilar frá heimasíðu UEFA voru hér í sumar og tóku upp efni sem birt verður á morgun.
Þegar að úrslitakeppni U19 kvenna var haldin hér á landi í sumar, heimsóttu starfsmenn uefa.com Akranes. Fóru þeir þangað til að skoða aðstæður enda hefur Akranes vakið athygli í knattspyrnuheiminum fyrir fjölda atvinnumanna er þaðan hafa komið. Tóku þeir viðtöl við nokkra af forkólfum og lykilmönnum knattspyrnunnar á Akranesi og reyndu að komast að leyndarmáli Skagamanna.
Afrakstur þessarar heimsóknar verður birtur á morgun á heimasíðu UEFA, undir lið sem nefnist "Training ground".