Selfyssingar hafa skilað leyfisgögnum
Selfyssingar hafa nú skilað leyfisgögnum sínum og hafa þá borist gögn frá öllum félögunum í 1. deild karla nema tveimur, en þau félög settu sín gögn í póst í dag, 15. janúar.
Þessi tvö félög eru ÍBV og KS/Leiftur. Þegar þau gögn hafa borist verður það staðfest með tilkynningu hér á ksi.is og þá verður jafnframt staðfest að þau hafi verið póstuð innan settra tímamarka, eins og heimilt er.